Velkomin í leikskólann

Afmælisbörn mánaðarins

Dagur á Holtakoti

Starfsfólk

Foreldrafélag

Viðburðardagatal

Hreyfistundir

Dygðakennsla

Ársskýrslur

Free Hit Counters
Free Hit Counters

Sumarlokun Holtakots
2012 - 25. júní - 20. júlí
2013 - 8. júlí - 2. ágúst
2014 - 23. júní - 18. júlí

Leikskólinn verður lokaður eftirtalda daga
30. september 2011 skipulagsdagur
6. febrúar 2012 skipulagsdagur
20. apríl 2012 námskeiðsdagur


 
 

 

 





LEIKSKÓLINN HOLTAKOT

Þverholti 3-5
Sími; 462-7081

Holtakot@akureyri.is



 

"oft gleður sá aðra sem glaður er“

  • 16. maí
    Í morgun fóru Flugu-  og Froskahópur í bæinn og Hof að taka þátt í hátíðadegi leik- og grunnskólanna á Akureyri. Fluguhópurinn var með atriði í Hofi og stóð sig með mikilli prýði. Hér má sjá myndir.

  • 16. maí
    Á föstudaginn förum við í sveitaferð. Við ætlum að heimsækja bæinn Kristnes í Eyjafjarðasveit og skoða dýrin. Við munum leggja af stað kl. 9:30 í rútu og áætlum að koma til baka um hádegisbil.

  • 10. maí

Afmælisbarn dagsins er Sigurbjörn Elmar og er hann 4 ára gamall. Til hamingju með afmælið Sigurbjörn :o)

  • 9. maí

Akureryarbær fagnar 150 ára afmæli sínu í ár. Afmælisnefnd bæjarins ákvað að tileinka maí-mánuð börnum bæjarins. Leik- og grunnskólarnir ætla af því tilefni að hengja upp ýmiskonar listaverk um bæinn. Okkur á Holtakoti hefur verið úthlutaður sýningastaður á heilsugæslustöðinni og ætlum við að setja "endurvinnslu"-sýninguna upp þar 9. maí (var áður í Kristjáns Café). Sýningin mun standa til 21. maí á göngum og biðstofum heilsugæslunnar.

  • 9. maí
            
    Tinna Kristín er afmælisbarn dagsins í dag á Holtakoti, er 4 ára. Innilega til hamingju með daginn Tinna! 

  • 4. maí
    Það var mikið fjör í leikskólanum í morgun, á andlitsmálingadegi. Þá mátti sjá allsskyns verur s.s. kisur, firðildi, ljón og nokkra sveitamenn með skegg :o) Kíkið endilega á myndirnar.
    Í morgun voru kiðlingarnir einnig í hreyfistund úti í góða veðrinu, sjáið myndirnar.

  • 3. maí
    Flottu krakkarnir hafa fyllt SMT- orminn af borsbörnum og völdu að hafa andlitsmálingadag á morgun, föstudag :o)

  • 2. maí

Ragnar Logi er afmælisbarnið í dag  og er hann 5 ára gamall. Innilega til hamingju með afmælið Ragnar :o)

  • 30. apríl

Afmælisbarn dagsins er hún Gunnella Rós en hún varð 5 ára þann 23. apríl síðast liðinn :o) Vonum að dagurinn þinn hafi verið ánægjulegur :o)

  • 27. apríl
    Í morgun, föstudag skreyttu afmælisbörn aprílmánaðar afmælisköku og buðu hinum börnunum.

  • 23. apríl

Afmælisbörn dagsins eru þær Gunnella Rós og Sigrún Dalrós. Við héldum bara uppá afmælið hennar Sigrúnar í dag þar sem Gunnella var í fríi, við höldum upp á hennar þegar hún kemur til baka. Til hamingju með daginn stelpur :o)

  • 18. apríl

    Afmælisbörn dagsins eru þau Guðmundur Alfreð, sem verður 6 ára á föstudaginn, 20. apríl og Signý María sem verður 3 ára einnig á föstudaginn. Við óskum þeim innilega til hamingju með daginn :)

  • 18. apríl
    Á myndasíðunni eru komnar inn myndir frá sumarkaffinu í morgun.

  • 17. apríl
    Á morgun, miðvikudag bjóðum við í sumarkaffi. Börnin eru búin að baka hafrakex með kaffinu, vonumst til að sjá alla foreldrana :o)

  • 16. apríl

    Hún Lilja Mist okkar varð fimm ára í gær, sunnudaginn 15. apríl. Innilega til hamingju með afmælið þitt Lilja!

  • 11.  apríl

Afmælisbarn dagisins er Eiður Bessi og er hann 3 ára. Til hamingju með daginn :o)

  • 10.  apríl

    Þann 7. apríl síðastliðinn varð Jóhannes Þór fimm ára. Innilega til hamingju :)

  • 30. mars

Afmælisbarn dagsins er hann Bergur Leó en hann verður 6 ára á morgun laugardaginn 31. mars. Innilega til hamingju með daginn :)

  • 28. mars
    Flottu krakkarnir á Holtakoti eru búnir að fylla SMT  orminn og hafa ákveðið að hafa bangsadag á morgun, fimmtudag :o) Munið eftir að merkja bangsana

  • 28. mars

    Starfsfólk Holtakots hefur sérstaklega verið að æfa sig í notkun á verkfærum SMT- styðjandi skólafærni. Að þessu sinni var það Ingibjörg sem var SMTsnillingur Holtakots.

  • 28. mars
    Myndir frá síðasta danstímanum er komið inn á myndasíðuna okkar. Endilega kíkið á það :o)

  • 26. mars

Afmælisbarn dagsin er Sigurður Jökull og er hann 4 ára í dag. Til hamingju með daginn :)

  • 22. mars

Afmælisbörn dagsins eru þær Morta Viktoría og Katla Eyþórsdóttir og eru þær báðar 5 ára. Til hamingju með daginn :)

  • 21. mars
    Á morgun, fimmtudag er síðasti danstíminn. Foreldrar eru velkomnir að koma og fylgjast með dansinum.
    Börn fædd 2009 dansa kl. 9-9:30
    Börn fædd 2008 dansa kl.9:30-10
    Börn fædd 2007 dansa kl. 10-10:30 og
    Börn fædd 2006 dansa kl. 10:30-11

 

                            
Eydís Elva Guðmundsdóttir
11. maí 2012

 

Hagnýtar upplýsingar og eyðublöð

Eldhúsið

Ljósmyndir

Tenglar

Hópastundir

Námskrá Holtakots

SMT - styðjandi skólafærni

Söngbókin

Kannanir


Mundu eftir gestabókinni

Starfsmannafundir á skólaárinu 2011 - 2012
Leikskólinn lokaður frá 12:15
26. ágúst 2011
11. nóvember 2011
2. janúar 2012
12. mars 2012